Útboð - það sem ber að varast!

Höfundur
Andri Björgvin Arnþórsson
Hafa samband

Þátttaka í útboðum getur skapað mikil viðskipti en henni fylgir jafnframt töluverð ábyrgð. Eitt af því mikilvægasta sem bjóðendur þurfa að hafa í huga er að kynna sér útboðsgögnin vandlega áður en tilboð er lagt fram.

Það getur haft verulegar fjárhagslegar afleiðingar ef tilboð bjóðanda byggir á röngum forsendum. Bjóðandi getur þannig orðið bundinn af því tilboði sem hann býður þótt það kunni að vera töluvert lægra en það hefði verið, ef hann hefði tekið mið af öllu forsendum útboðsins.

Skýrt dæmi um þetta má sjá í dómi Landsréttar frá 12. mars 2026 í máli F gegn Ö. Þar hafði verkfræðistofa gert tilboð í hönnunarvinnu vegna byggingarframkvæmda. Í útboðslýsingu var vísað til 7.560 fermetra byggingarmagns, en heildarstærð verkefnisins var í raun rúmlega 10.000 fermetrar þegar kjallari og tengigangur voru taldir með.

Verkfræðistofan krafðist viðbótar þóknunar þar sem hún hafði byggt tilboðið á lægri fermetratölunni. Landsréttur féllst ekki á kröfuna. Þótt orðalag útboðslýsingarinnar gæti hafa valdið misskilningi komu upplýsingar um raunverulegt umfang verkefnisins fram í fylgiskjölum útboðsins. Bjóðanda bar að kynna sér öll útboðsgögnin og gat jafnframt óskað frekari skýringa áður en tilboð var lagt fram.

Dómurinn er góð áminning um að lesa þarf útboðsgögn sem eina heild. Ekki er nóg að treysta á einstakar tölur eða almennar lýsingar. Ef misræmi eða óvissa kemur upp er mikilvægt að óska skýringa áður en tilboði er skilað. Vandleg yfirferð í upphafi getur komið í veg fyrir kostnaðarsaman ágreining síðar.

‍

Andri Björgvin Arnþórsson
Lögmaður
Um Arnthorsson

Hjá Arnthorsson vinnum við markvisst að því að leysa mál með skilvirkum hætti.

Tengdar greinar

Sjá allar greinar

Er erfðaskráin ógild?

Lesa meira

Öryggi á vinnustöðum - skaðabótaskylda?

Lesa meira

Hafa samband